Description
Handvalinn mánaðarlegur kassi með okkar uppáhalds, lífrænum vörum frá bændum á Ítalíu. Innihaldið breytist frá einum kassa til annars, en gæðin og sagan á bak við hvern hlut eru alltaf í fyrirrúmi.
Matarkassinn inniheldur matvörur sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Við notum þær mest til að búa til fljótlega og einstaka rétti. Pastasósurnar frá La Vialla eru báðar mjög sterkar svo við blöndum þeim oft við mildara tómatmaukið frá Valdibella til að búa til fullkomna máltíð. Þú þarft ekkert annað! Við bætum líka rauða pestóinu við til að gefa meira bragð.
Fyrir pizzasósu heimilisins notum við tómatmaukið frá Valdibella, annað hvort hreint eða með basiliku. Tómatarnir sem eru notaðir í maukið þeirra eru ræktaðir án vökvunar og tíndir þegar orðnir vel þroskaðir. Afurðin er því einstaklega ljúffeng og næstum því sæt. Stundum blöndum við pastasósunni með hvítlauk við tómatmaukið frá Valdibella til að gera pizzasósuna aðeins sterkari.
Ólífuolían í kassanum er aðeins mildari en hin dæmigerða ólífuolía frá Ítalíu. Hún er því bæði ljúffeng og fjölhæfari en flestar.
La Vialla
Ólífuolía
La Vialla ræktar ólífurnar í þessa ólífuolíu í Puglia héraði. Hún er aðeins mýkri og mildari heldur en ólífuolía hússins (frá Toskana) og því fjölhæfari til að nota í eldhúsinu með flestu hráefni, hvort sem fisk, kjöti eða grænmeti.
Balsamik edik frá Modena
Þykkt balsamik edik og lokkandi súrsætt eins og þau gerast best. Þroskast í tvö ár í eikartunnum.
Pestó – rautt
Rautt pestó sem inniheldur sólþurrkaða tómata, ólífuolíu, pecorino ost, furuhnetur, basilíku, hvítlauk og sterkan chili, svo það rífur vel í. Bragðmikið pestó sem er ljúffengt á snittubrauðið, sem meðlæti eða eitt og sér sem pastasósa.
Pastasósa með hvítlauk
Pastasósa úr tómötum og jómfrúar-ólífuolíu þar sem hvítlaukur og chili eru í aðalhlutverki.
Pastasósa með kirsuberjatómötum
Pastasósa þar sem sætleiki kirsuberjatómatanna blandast á skemmtilegan hátt við sterkt eftirbragð af chili og hvítlauk.
Fusilli
Pastaskrúfur úr fínmöluðu durum mjöli. Skorið út í bronsi sem gerir áferð þess hrjúfa svo að pastasósurnar þeki það sérstaklega vel. Einstakt pasta!
Tagliatelle
Einstakar pastalengur úr fínmöluðu durum mjöli. Skorið út í bronsi sem gerir áferð þess hrjúfa svo að pastasósurnar þeki það sérstaklega vel.
Valdibella
Tómatmauk – hreint
Tómatarnir eru ræktaðir án vökvunar svo þeir þroskist náttúrulega með mikið bragð og næringarinnihald.
Tómatmauk með basiliku
Sama gerð tómata er notuð í þetta mauk og er notuð í hreina maukið, með viðbættri basiliku.
Krydd
Ekta handtýnt krydd sem fangar ilm Sikileyjar betur en nokkuð annað.
Svona virkar áskriftin
Þú gerist áskrifandi með því að panta kassann.
Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar næsti kassi er kominn í hús – eða áður.
Þú getur alltaf hætt áskrift hvenær sem er áður en næsti kassi er sendur – engin skuldbinding.
Passar vel með
Við mælum sérstaklega með þessum tveimur fjölhæfu vínum frá La Vialla sem passa fullkomlega með innihaldi kassans. Hægt er að bæta öðru hvoru við pöntunina, eða báðum.














