Description
INNIHALDSLÝSING:
Ólífuolía með chili (200 ml.) Ekta jómfrúar-ólífuolía með peperoncino chili. Sterk og bragðmikil.
Grænt pestó (180 gr.) Grænt pestó úr pecorino osti bændanna, parmigiano osti, basilíku, furuhnetum o.fl. Pestó í algjör-um sérflokki!
Rautt pestó (180 gr.) Rautt pestó sem inniheldur sólþurrkaða tómata, ólífuolíu, pecorino ost, furuhnetur, basilíku, hvítlauk og sterkan chili, svo það rífur vel í. Bragðmikið pestó sem er ljúffengt á snittubrauðið, sem meðlæti eða eitt og sér sem pastasósa.
Pastasósa með hvítlauk (280 gr.) Pastasósa úr tómötum og jómfrúar-ólífuolíu þar sem hvítlaukur og chili eru í aðalhlutverki.
Pastasósa með kirsuberjatómötum (280 gr.) Pastasósa þar sem sætleiki kirsuberjatómatanna blandast á skemmtilegan hátt við sterkt eftirbragð af chili og hvítlauk.
Fusilli (500 gr.) Pastaskrúfur úr fínmöluðu durum mjöli. Skorið út í bronsi sem gerir áferð þess hrjúfa svo að pastasósurnar þeki það sérstaklega vel. Einstakt pasta!
Tagliatelle (500 gr.) Einstakar pastalengjur úr fínmöluðu durum mjöli. Skorið út í bronsi sem gerir áferð þess hrjúfa svo að pastasósurnar þeki það sérstaklega vel..










