Sale!

Gjafakassi – Sex klassísk vín frá Toskana – rauðvín og hvítvín – 20% afsláttur

Original price was: 26.500kr..Current price is: 21.200kr..

6 x 750 ml.

Gjafakassinn inniheldur 6 lífræn rauðvín frá La Vialla í Toskana, þurrt Chianti og ávaxtaríkt Torbolone.

Innihaldslýsing með íslenskum texta er í hverjum kassa.

Kassinn inniheldur líka fallega bók um La Vialla og framleiðslu þeirra.

Kassarnir eru grænir með rauðum borða og fylltir með hálmi sem bændurnir rækta sjálfir.

Lífræn matvara.

Lífefld ræktun (bíódýnamísk).

13 in stock

Description

INNIHALDSLÝSING

Chianti Superiore 2022 (750 ml.) Klassískt “chianti” rauðvín frá Toskana og alhliða matavarvín með pizzum, pasta og léttari kjötréttum. Blanda af þrúgunum sangiovese, canaiolo og merlot. Þroskast í fimm mánuði í stórum eikartunnum.
Torbolone 2022 (750 ml.)  Bragðmikið og ávaxtaríkt rauðvín úr þrúgunum sangiovese, cabernet sauvignon og merlot sem hentar best með steikinni. Þroskast í stáltönkum svo ávöxturinn fær að njóta sín.
Lecciomoro 2023 (750 ml.) Ávaxtaríkt og öflugt rauðvín frá vínekrum bóndans á Maremma-svæðinu í Toskana. Blanda af þrúgunum sangiovese, merlot, cabernet sauvignon og syrah. Þroskast í 12 mánuði í eikartunnum (stórum og smáum) sem gefur því dýpt með vott af eikartónum.
Chianti Riserva 2021 (750 ml.) Þroskast í 24 mánuði í eikartunnum, stórum og litlum. Bestu þrúgur bóndans fara í þetta magnaða rauðvín. Djúpt og margslungið. Framleitt úr þrúgunum sangiovese, cabernet sauvignon og canaiolo. Ávaxtaríkur og blómlegur ilmur með tónum af fjólum, plómum og granateplum. Mjúkt í munni og ferskt.
Vernaccia di San Gimignano 2024 (750 ml.) Hvítvín frá þorpinu fræga San Gimignano sem er framleitt úr samnefndi þrúgu, vernaccia di san gimignano. Ekta Toskana hvítvín og fjölhæft matarvín með góðu jafnvægi á milli sýru og ávaxtar.
Casa Conforto 2024 (750 ml.) Ekta hvítvín frá Toskana, passlega þurrt, passlega ávaxtaríkt, passlega mjúkt og frábært matarvín. Framleitt úr trebbiano þrúgunni ásamt chardonnay. Blómlegur ilmur með vott af sítrónum og hnetum. Þroskast í stáltönkum svo ávöxturinn fái að njóta sín sem best.