Foradori – smakkpakki 2

30.000kr.

Fimm vín frá Elisabettu Foradori.

Stórvínið Granato 2021 er framleitt 100% úr teroldego þrúgunni. Það þroskast í blöndu af eikartunnum og leikerjum. Magnað og margslungið rauðvín.

Morei er einstaklega fágað rauðvín úr teroldego þrúgunni. Það þroskast í leirkerjum (anfora).

Fuoripista er gulvín úr pinot grigio þrúgunni sem þroskast í leirkerjum. Bleik-gulur litur. Eitt af mögnuðust gulvínum Ítalíu.

Foradori 2022 er framleitt úr teroldego-þrúgunni sem þroskast í 12 mánuði í blöndu af viðartunnum og sements-tönkum. Teroldego þrúgan er fágæt þrúga sem er eingöng ræktuð í Trentino sem minnir okkur alltaf á vel þroskað granatepli.

Lezer er mjög létt rauðvín sem dvelur í aðeins einn dag með hýðina svo það er mjög ljóst á litinn og minnir aðeins á rósavín. Það er að mestu leyti framleitt úr teroldego þrúgunni, 78%, en restin er blanda af ótal öðrum þrúgum

Lífræn og lífefld ræktun.

Categories: , ,