Vörurnar koma allar frá Ítalíu. Við veljum eingöngu lífrænar vörur sem eru framleiddar með virðingu fyrir náttúrunni og okkur sjálfum.
Allar vörurnar eru fyrst og fremst framleiddar með fáum en góðum hráefnum og án aukaefna.
MATVARA
ALCE NERO á ítalíu
Alce Nero er samyrkjubú á Ítalíu í eigu bænda víðs vegar um landið. Stofnað 1978 af Gino Girolomani, einum fyrsta og mesta frumkvöðli lífrænnar ræktunar á Ítalíu og víðar.
Allt frá stofnun hefur Alce Nero verið samvinnu- og samstarfsverkefni fjölda bænda víðs vegar á Ítalíu, allt frá Ölpum til Sikileyjar. Auk þess er Alce Nero í samstarfi við bændur í M-Ameríku sem framleiða kakó, kaffi og sykur undir bæði lífrænni og fairtrade vottun.
Framleiðsla Alce Nero endurspeglar virðinguna sem þau bera fyrir náttúrunni og okkur. Innihald varanna og rekjanleiki er unninn eftir hugmyndafræði Slow Food samtakanna
LA VIALLA í Toskana
La Vialla er myndarbýli ekki langt frá Arezzo í Toskana. Þar er ekki bara stunduð lífræn ræktun heldur lífelfd (biodynamic) ræktun og er býlið með eitt stærsta Demeter vottaða land í Evrópu, en Demeter er alþjóðleg vottun fyrir lífelfda ræktun. Afurðirnar eru nýttar til að framleiða vín, olíur, osta, hunang, edik, sultur, pesto, pasta og margt fleira.
Öll umgjörð er látlaus, hógvær og manneskjuleg. Hráefnið er í fyrirrúmi og vörurnar búnar til svo það njóti sín sem best á einfaldan og “heimilislegan” hátt.
Engin aukaefni eru notuð hjá La Vialla.
ARIANNA OCCHIPINTI á Sikiley
Arianna er ung og öflug víngerðarkona á Sikiley sem hóf eigin vínrækt fyrir 15 árum síðan þá rétt rúmlega tvítug. Hún fór í víngerðarskóla en lærði mest af frænda sínum og öðrum í hennar nærumhverfi sem stunduðu náttúrulega víngerð. Strax frá upphafi hefur Arianna haft sterka sýn á hvað vínin hennar eigi að endurspegla. þau eiga að vera persónuleg, hrein og bein og með sterka tilfinningu fyrir uppruna sínum. Hennar leið að því marki er að gera vín á eins náttúrulegan hátt og er unnt, lífræn, án nokkurra eiturefna, náttúrulega gerjuð, ófilteruð og með littlu viðbættu súlfati.
VALDIBELLA á Sikiley
Það er ekki einn bóndi á Valdibella (Fagradal) heldur margir sem allir vinna saman með það að markmiði að búa til fyrirmyndar samfélag manna og náttúru í eins góðu jafnvægi og er hægt. Hér eru framleiddir lífrænir ávextir, grænmeti, ólífur, hunang og að sjálfsögðu vínberin.
VÍN
CIRELLI í Abruzzo
Stofnað 2003 af hjónunum Francesco og Michela við þorpið Atri um 8 km frá strönd Adríahafsins. Til að skapa sem heilbrigðast umhverfi er vínræktinni blandað saman við hvítlauksrækt, fíkjur, ólífur og mjöl að ógleymdum gæsunum sem spígspora um vínekrurnar og gefa sinn náttúrulega áburð. Virkilega falleg og stílhrein vín eru framleidd á bænum sem ýmist fá að þroskast í stáltönkum eða í anfóru leirkerjum.
CANTINA GIARDINO í Campania
Vínbændurnir og hjónin Daniela og Antonio de Gruttola leiða Cantina Giardino, samstarfsverkefni sex vina í Kampanía héraði. Þau leituðu uppi litla vínbændur á svæðinu sem höfðu ræktað sinn gamla vínvið kynslóðum saman á náttúrulegan hátt án aukaefna og hófu samstarf við þá um framleiðslu vína undir merkjum Cantina Giardino. 2010 fundu þau og keyptu eigin vínekrur með hundgömlum vínvið frá því uppúr 1930 sem bættist við framleiðsluna.
ELISABETTA FORADORI í Trentino
Elisabetta Foradori er mikill frumkvöðull í víngerð á Ítalíu. Biodýnamísk ræktun (lífefld) og virðingin fyrir náttúrunni er hér í hverju skrefi. Ef það er eitthvað eitt orð sem væri hægt að segja um Foradori vínin þá væri það fágun. Nýlega bætti hún svo við ýmis konar grænmetiræktun, ostagerð ofl. enda er það hjarta bíódýnamískrar hugsunur að vera með fjölþætta ræktun.
JOSKO GRAVNER í Friuli
Josko Gravner er faðir gulvína á Ítalíu. Hann framleiðir mögnuð vín sem þroskast í hálft ár í leirkerjum og fimm ár í eikartunnum og eru ekki sett í sölu fyrr en hafa náð tíunda ári, í fyrsta lagi.
LA COSTE í Lazio
Gianmarco Antonuzzi og Clementine Bouveron rækta garðinn sinn í bænum Gradoli 450 metra hæð fyrir ofan Bolseno vatn steinsnar frá landamærum Toskana þar sem eldfjallajarðvegurinn er sérstaklega ríkur af járni og steinefnum. Blandaður landbúnaður af ýmsu tagi hjálpar enn frekar við að búa til sjálfbært vistkerfi sem vínin eru náttúrulegur hluti af.
LAMMIDIA í Abruzzo
Lammidia er nýr og agnarsmár vínbóndi ekki langt frá Pescara með framleiðslu upp á aðeins um 15.000 flöskur árlega. Reyndar væri réttara að tala um vínbændur í fleirtölu heldur en einn bónda því tveir félagar stunda víngerðina, Davide og Marco, sem hafa þekkst frá því í leikskóla. Eftir háskóla fóru þeir í sitt hvora áttina en það var ástríðan og áhuginn á náttúruvíngerð sem sameinaði þá aftur undir merki Lammidia.
VALLI UNITE í Piemonte
Fjölskyldurnar og nágrannir sem standa að baki samstarfsverkefninu telja Valli Unite telja næstum 30 einstaklinga og heildarlandareignin um 100 hektarar. Öll ræktun er lífæn hvort sem það eru vínberin í vínin, ostarnir eða kjötið. Fyrirmyndarsambýli sem á ekki marga sína líka.
ZANOTTO í Veneto
Riccardo Zanotto er búsettur í hjarta Prosecco freyðivínssvæðisins. Hans framleiðsla snýst aðallega um hin léttfreyðandi og heillandi “Col Fondo” vín þar sem bubblurnar verða til með náttúrulegum meðulum. Þau eru all skýjuð með botnfalli sem má annað hvort skilja frá með því að umhella víninu eða, þvert á móti, hrista upp í flöskunni til að fá meiri og sveitalegri karakter.
Zanotto framleiðir vinsælasta vínið okkar frá upphafi, Frottola.